Íslendingafélagið í Björgvin óskar eftir áhugasömum aðila til að færa inn fréttir og efni á heimasíðu félagsins.
Viðkomandi þarf ekki að hafa sér kunnáttu á tölvur eða forritun þar sem umgjörð síðunnar er með eindæmum einföld.
Viðkomandi verður ekki einn með síðuna því að ég er enn hérna og hef hugsað mér að halda áfram, en mig vantar bara smá aðstoð.
Fréttir og efni geta verið af ýmsum toga, t.d. setja inn frétt sem ég (vefstjóranördið) hefði átt að vera búinn að setja inn fyrir löngu um handboltaleik Íslands á móti Norðmönnum sem fram fer 18 janúar. Á facebook síðu félagsins hefur Sigridur Svan skrifað um að hittast og horfa á leikinn.
Island -Kroatia kl 20:00 Handbolti verdur syndur á stórskermi å Dubliner.
Their sem koma á leikinn fá tilbod å ódyrari bjór og mat.
Dubliner liggur rétt hjå fløybanen.
Vellkomin
Villi Vitleysingur segir á facebook:
Ísland-Noregur miðvikudag sýnt á Tonga bar fyrir ofan Harbour cafe 30% aflsáttur af bjór og veitingum. Hvernig væri að mæti svo?
Þetta er frábært framtak að einhver fari í málið og bara „reddar þessu“ eins og sannur Íslendingur.
Ef einhver er áhugasamur/söm um að skrfa á vefinn vinsamlegast sendið póst á ingthorsig@gmail.com.
Einnig má benda fólki á að ef það hefur eitthvað efni sem það vill koma á framfæri bara að senda það á isbjorg@gmail.com.
Með kv,
Ingþór vefnörd.
It’s a joy to find soemone who can think like that