Þorrablót Íslendingafélagsins í Björgvin verður haldið þann 4. febrúar 2012 í Åsatun (Sjá kort) Forvasshaugen 6 Nyborg í Åsana bak við Gulgruven og leikur hljómsveitin EINN&SJöTÍU fyrir dansi.
Húsið opnar kl 18:30 fyrir matargesti og kl 21:30 fyrir ballgesti. miðasala á ballið líkur kl 23:30. Rúta sem tekur 60 í sæti fer frá Åsatun um kl. 1.30 niður í bæ fyrir þá sem vilja nýta sér það.
Mælt er með að fólk taki með sér eigin drykkki en Vín-/ bjórsala verður á staðnum.
Ákveðið var að færa þorrablótið í stærri sal þar sem færri komust að en vildu á síðasta þorrablót.
Skráning er hjá Ernu Jóhannsdóttir, sími 92662245 eða E-mail torrablot@isbjorg.com
Þeir sem hafa greitt félagsgjald fyrir 2011 greiða kr 450,- pr mann, Hjón greiða 800,-. fyrir þá sem eru ekki meðlimir 600,- og 1000,- fyrir hjón. Miðar á ball eftir mat kosta kr 150,- fyrir félagsmenn og kr 200,- fyrir aðra gesti.
Athugið að það verður að panta og greiða miða í mat og á ballið fyrir 1.Febrúar 2012. Miðar greiðist inn á Reikn: 0532.16.58913
Glæsilegir vinningar verða í Þorra happadrættinu í ár, 4 flugmiðar, íslensk brennivín svo eitthvað sé nefnt.
Með bestu kveðju,
Stjórn Íslendingafélagsins í Björgvin.
![skjaldamerki_islands[1]](http://isbjorg.com/wp-content/uploads/2012/05/skjaldamerki_islands1-285x300.jpg)