Sunnudaginn 27 maí kl. 14:00 ætlum við að hittast við Tennebekktjörna, Nipedalen og fagna komu sumars. Íslendingafélagið verður með stórt grill á staðnum, þar sem félagar og gestir geta grillað það sem þeir kjósa að koma með með sér. Einnig kemur hver og einn með sín drykkjarföng. Aðstaða til útiveru er mjög góð á svæðinu. Flott strönd við fallega tjörn þar sem hægt er að vaða eða jafnvel synda ef veður leyfir. Það er spáð sumri og sól, munið að taka með sólarvörnina:) takið gjarnan með útilegustólana, teppi eða annað undirlag að sitja á. Pappadiska, glös og annað sem þurfa þykir í strandar/lautarferð. Og svo að sjálfsögðu góða skapið
Það er hægt að komast að ströndinni á bíl, bílastæði eru nágrenninu, (Sjá kort).
Vonumst til að sjá sem flesta,
Stjórnin
![skjaldamerki_islands[1]](http://isbjorg.com/wp-content/uploads/2012/05/skjaldamerki_islands1-285x300.jpg)