Til Íslendinga í Bergen og nágrenni
Hæ hó jibbí jeij það er að koma 17. júní
17. júní verður sérstaklega hátíðlegur að þessu sinni í Bergen.
Hátíðin hefst með barna- og fjölskylduguðþjónustu í Sandviken kirkju Kirkegaten 1 kl. 13:30. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson sóknarprestur í Hallgrímskirkju í Reykjavík messar. Sönghópur íslendinga í Bergen leiðir sönginn við athöfnina og Ingibjartur Jónsson leikur á orgelið.
Skátaheimilið við Sandvikveien 41 opnar kl. 14.
Gengið verður í skrúðgöngu frá kirkjunni að guðþjónustu lokinni. Þeir sem ekki fara í guðþjónustuna, en vilja taka þátt í skrúðgöngunni, ganga af stað frá Skátaheimilinu kl. 14:15 áleiðis að kirkjunni þar sem kirkjugestir slást í hópinn.
Dagskráin í og við skátaheimilið er í umsjón stjórnar íslendingafélagsins og verður með hefðbundnu sniði, kveikt verður upp í grillinu góða. Gestir koma sjálfir með á grillið ásamt drykkjarföngum, en kaffi og með því verður á boðstólnum. Leikir verða fyrir börnin ásamt happadrætti með góðum vinningum.
Allir eru hjartanlega velkomnir
Hlökkum til að eyða með ykkur þjóðhátíðardeginum
Kveðja Ísbjörg íslendingafélagið í Bergen og íslenski söfnuðurinn í Noregi.
Tengiliðir;
Íslendingafélagsins: Katrín E. Ingvadóttir, stjorn.islendingafelags.bergen@gmail.com
Íslenska safnaðarins: Helga Sigríður Þórsdóttir: helga.thorsd@gmail.com

![skjaldamerki_islands[1]](http://isbjorg.com/wp-content/uploads/2012/05/skjaldamerki_islands1-285x300.jpg)