Sönghópurinn í Bergen

Nýlega var félagsskapur sem ætlar að kenna sig við söng , hverskonar, formlega stofnaður á Fløyen hér í Bergen. Hópurinn heitir „Sönghópurinn í Bergen“.

Við höfum hist nokkur í vetur og skemmt okkur í góðum félagsskap við söng og sitthvað annað skemmtilegt.

Nú nálgast þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga og höfum við verið beðin um að leiða söng í messu á undan árlegri skemmtun Íslendingafélagsins. Sjá nánar www.isbjorg.com

Eins og okkur flestum er kunnugt sem hafa upplifað Bergenskan 17. maí þá er heldur betur haldið upp á þjóðhátíðina þar sem ótrúlega margir taka þátt í „toget“ eins og það er kallað hér.

Nú dettur okkur í hug að kalla til ykkar sem etv. hefðuð gaman af að vera með. Við ætlum að hittast á mánudagskvöldið 11. júní kl. 19:30 og aftur miðvikdag 13. júní kl. 17:30 og renna yfir nokkur lög sem hæfa munu okkar þjóðhátíð. Í haust munum við síðan hittast og taka upp þráðinn við söng og annað skemmtilegt. Ekki halda þér frá þótt þú getir ekki mætt nema á aðra hvora æfinguna, þetta verður einraddað og ekkert vesen.

Vinsamlega sendu okkur tölvupóst á bergen.songhopur@gmail.com við munum senda þér póst um hvar á að mæta á mánudeginum. Miðvikudagsæfingin verður í Sælen kirkju í Fyllingsdalen.

Koma svo! Bara skemmtilegt !

This entry was posted in Auglýsingar. Bookmark the permalink.

Færðu inn athugasemd