Lög Íslendingafélagsins í Björgvin samþykkt á aðalfundi 26.apríl 1994, með breytingum samþykkt á aðalfundum 28 apríl 1999, 27 apríl 2002, og 25 apríl 2004. |
§ 1. NAFN OG MARKMIÐ.Félagið heitir „Íslendingafélagið í Björgvin“. Heimili þess og varnarþing er í Bergen. Markmið þess er að efla og viðhalda samskiptum félagsmanna og vinna að sameiginlegum hagsmunarmálum þeirra. § 2. FÉLAGAR.Félagsrétt hafa allir Íslendingar og aðrir þeir sem áhuga hafa á Íslandi og íslenskum málefnum. Börn félagsmanna sem eru yngri en 20 ára eru sjálfkrafa félagsmenn í Íslendingafélaginu. § 3. STJÓRN.Í stjórn félagsins sitja fimm til sjö manns og er stjórnin og meðstjórnendur. Stjórnin getur skipað nefndir sem annast undirbúning og /eða sér um skemmtanir og aðrar samkomur í nafni félagsins. § 4. AÐALFUNDUR.Aðalfundur skal haldinn á tímabilinu 1. mars til 30. apríl ár hvert. Aðalfundur er löglegur sé til hans boðað með 30 daga fyrirvara. Fundarboð skal berast öllum félagsmönnum bréflega. Í fundarboði skal koma fram hvaða mál á að taka fyrir á aðalfundi. Tillögur um mál sem óskað er eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi verða að hafa borist til stjórnarinnar 14 dögum fyrir aðalfund. Atkvæðisrétt hafa skuldlausir félagar. Verkefni aðalfundar eru
§ 5. SJÓÐIR OG REIKNINGAR.Sjóðir félagsins skulu vera í vörslu gjaldkera. Starfsár og reikningar félagsins miðast við almanaksárið og skulu lagðir fram endurskoðaðir á aðalfundi. Allir reikningar og útborganir, stærri enn NOK 1.000,00 skulu lagðir fram á næsta stjórnarfundi. § 6. ÁKVÖRÐUN ÁRSGJALDS.Ársgjald fyrir næsta starfsár skal fastsett á aðalfundi félagsins. Félagar sem skrá sig í félagið á starfsárinu skulu greiða hlutfall af félagsgjaldi sem samsvarar fjölda mánaða sem eftir eru á starfsárinu. Félagsmenn sem ekki greiða ársgjöld falla út af félagaskrá. § 7. LAGABREYTINGAR.Lagabreytingar geta aðeins farið fram á aðalfundi og skulu hafa borist stjórninni fyrir janúarlok. Lagabreytingar skal senda út með fundarboði til aðalfundar. Til að lagabreytingar taka gildi, þarf samþykki 2/3 atkvæðabærra félaga á aðalfundi. § 8. KOSNINGAR.Formaður skal kjörinn sérstaklega og síðan aðrir stjórnarmenn sem skipta sjálfir með sér verkum. Kosningar skulu vera leynilegar og eingöngu skuldlausir félagar viðstaddir aðalfund geta tekið þátt í kjöri. § 9. STARFSEMI FÉLAGSINS.Starfsemi félagsins skal miðast við að efla samskipti félagsmanna. Starfsemi getur m.a. verið fólgin í umsjón á þorrablóti, skipulagningu á jólaballi og öðrum samkomum sem hafa það markmið að auka tengsl félagsmanna. Íslendingafélagið í Björgvin er óháð stjórnmálum og trúarbrögðum. Stjórn félagsins getur þó haft milligöngu um skipulagningu á guðþjónustu fyrir íslenska söfnuðinn í Noregi. Stjórn félagsins getur einnig haft milligöngu um skipulagningu funda með íslenskum stjórnmálamönnum, sem eru á ferð um Bergen eða nágrenni. Ofangreint er þó háð því að slíkar samkomur hafi ekki neikvæð áhrif á fjárhag félagsins eða skaði starfsemi þess að öðru leyti. |
-
Nýlegar færslur
Flokkar
Fréttabréf
Hitt og þetta
Kerfisstjórinn
Eftirtaldir styrktu þorrablót Íslendingafélagsins í Björgvin 2011
Møller Bil Åsane- Skíðapoki,Skópoki og takska
Indisk Emporium - Gjafakort
Befine Naildesign Åsane - Gjafakort
Ulset Hud & Kroppspleie - Gjafakort
Sendiráð Íslands í Osló - Brennivín Gylfi Einarsson Branntreyja nr 8Íslendingafélagið þakkar öllum fyrir stuðninginn