Messa í Åsane-kirke þann 21. mars kl. 14.00
Sunnudaginn 21. mars kl. 14.00 verður guðþjónusta í Åsane nye kirke. Prestur er Sr. Arna Grétarsdóttir. Eftir messu verður kaffi og er fólk beðið að taka með sér meðlæti á okkar margrómaða hlaðborð.
Samtímis hátíðarguðþjónustu verður sunnudagaskóli. Sunnudagaskólinn höfðar ágætlega til leikskólabarna og barna í fyrstu bekkjum grunnskólans. Börnin heyra sögur, við syngjum saman, förum í leiki og leysum ýmis verkefni.
Íslenskisöfnuðurinn í (Bergen) Noregi.
http://www.kirkjan.no/


